Við Alli
fórum á styrktar og heiðurs tónleika lítillar frænku hans um
daginn, Þuríðar Örnu sem er mikið veik. Stebbi Hilmars, Eyfi,
Regína Ósk o.fl. sungu. Þetta var ógleymanlegt kvöld og
frábært að sjá hvað fólk stendur saman þegar erfiðleikar
steðja að.. Ég vona að allir hugsi hlýlega
til þeirra sem eiga bágt og biðji fyrir þeim.
Ég lifi í draumi
Lag: Eyfi
Texti: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Ég lifi í draumi,
dreg hvergi mörkin dags og nætur.
Sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Í hægum gangi,
á fullt í fangi með að finna það
sem oftast reynist öfug
átt.
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum.
Lentur hringsólandi á vegi miðjum.
Ég lifi í draumi,
dreg hvergi mörkin dags og nætur.
Sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Ég lifi í tómi,
tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.
Aleinn á randi
veit að minn
vandi er að
vera þar
sem engin getur áttað sig.
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili.
Leitandi að báti á réttum kili.
Ég lifi í tómi,
tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.

Ég lifi í veröld,
veit ekki hvaða vindar þjóta.
En þeir fara framhjá mér.
Eins konar fangi
á víðavangi eða varnarlaus
gegn því sem er á meðan er.
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta.
Líf mitt rennur burt á hröðum flótta.
Ég lifi í veröld,
veit ekki hvaða vindar þjóta.
En þeir fara framhjá mér.
Þetta er annar dagurinn í röð
sem ég er heima. Ég held það sé ekki gott fyrir mig að vera svona
mikið ein.. Ég hugsa alltaf of mikið.
Ég veit ekki hvort að ég sé
misskilin eða hvort ég sé bara svona góð í að sannfæra mig um það.
Ég sakna þess að hafa vini mína allt í kringum mig. Finnst ég bara
eiga kunningja í dag. Meira að segja gamlir vinir eru í raun í dag
bara kunningjar því það er ekkert samband og fólk þroskast og
breytist.


En ég á alltaf
Alla
